allt of langt síđan.....Thelma Björg Árnadóttir

Verð nú aðeins að henda nokkrum orðum hér niður og láta vita af okkur. Hætti eiginlega að blogga fyrir áramót vegna þess að ég gat ekki talað um allt sem var í gangi. Við komum nefnilega heim surprise og mig hlakkaði svo til en gat ekki talað um það Wink
Það var líka ekkert lítið gaman að sjá svipinn á fólki þegar við stóðum allt í einu fyrir utan hjá þeim hehe, besta mómentið var samt þegar Gréta vinkona var að bíða eftir símtali frá Thelmu sinni þegar ég bankaði. Hún opnaði og lokaði bara aftur haha.
Kara úti að leika með Guðrúnu

Það var alveg æðislegt að koma heim á klakann, vera með Viktoríu njóta þess að vera hjá öllu fólkinu sínu,hitta litla prinsinn hjá Flóru og Bjögga, knúsa Önnu Siggu, sitja langt fram eftir nóttu og spjalla, fara í pottinn hjá mömmu, horfa á ekki þrívíddarmynd með þrívíddargleraugu hjá pabba haha og það var sko dekrað við okkur á allan hátt. Takk fyrir okkur. 
Svo var nú tekið smá tjútt á klakanum, og það var auðvitað algjör snild.



Janúar var mjög strembinn þar sem við vorum í prófum 28. og 29. og var það 85 mín. kynning fyrir kennara um verkefnið sem við unnum alla önnina, vorum 4 í hóp sem unnum þetta. Hönnuðum hús og gerðum svo allt sem kemur að húsinu, þrívíddarteikningar, lagnateikningar, skólpteikningar, loftræstikerfi, varmatapsreikningar, kostnaðaráætlun, vinnuskipulag og bara allt sem kemur að þessu húsi. Okkur gékk svona glimrandi vel og var okkur hleypt áfram á næstu önn Smile

Kara Sól fékk svo hlaupabólu með stæl 4 dögum fyrir próf Tongue out um 200 stk.



og var það hún Mæja Lingdal og Þórir sem björguðu okkur í prófundibúningnum, þau eru algjörir öðlingar takk, takk þið eruð æði Wink
Litla prinsessan mín varð svo rosaveik um kvöldið eftir prófið mitt fékk 40 stiga hita og vá hvað ég var fegin að vera komin í frí þá.

Hlaupabólan er öll að fara og Kara gæti ekki verið hressari horfir á mamma mía lágmark einu sinni á dag, syngur og dansar með haha stundum held ég að hún sé orðin miklu eldri en hún er.
Á morgun kemur elsku mamma mín í orlof til okkar Wink og ég er búin að mana hana upp í að kíkja með okkur á þorrablótið næstu helgi.
Gulli er búinn að vera á fullu í nefnd að skipuleggja þorrablótið með liðinu og er búið að selja um 140 miða og mig er bara farið að hlakka rosalega til Á móti sól mun svo spila og hef ég ákveðið að missa mig á dansgólfinu með harðfisk í annari og captain í hinni hehe
Svo eyðilögðum við surprise-ið hjá pabba hann ætlaði að koma og banka upp á hjá okkur næsta fim. áður en hann færi á parketsýningu í Svíþjóð úúúpppsss mamma og pabbi að plana sömu dagana hahahaha
Þannig að pabbi er að spá í að koma eftir parketsýninguna sem sagt mið. í þar næstu viku Wink Bara stuð á liðinu og hlakkar okkur mjög mikið til að fá liðið.
Jæja tíminn fer að byrja hjá mér og ég lofa að vera duglegri að blogga Wink

Fílamyndir úr iphone engin rosa gćđi en...Thelma Björg Árnadóttir




Flottir fílar Smile 





En annars er allt gott að frétta af okkur úr kuldanum í Dk erum búin að skreyta smá, hafa það kósý og spila jólalög
Svo er bara hellingur að læra þessa dagana þannig að ég skrifa meira seinna Wink

Kveðja Thelms

Okey smá blogg.....Thelma Björg Árnadóttir

Jiiii ég sem var svo bjartsýn að halda að það yrði eitthvað minna að gera núna haha.  
Byrjum á Köru, dúllunni minni sem gengur svo vel á leikskólanum og skilur Dönskuna alveg núna og er byrjuð að koma með setningar á dönsku. Algjör rúsína svo var Gulli að fara með hana á leikskólann í gær þá kemur einn strákur hlaupandi á eftir Köru og kissir hana hehe og Gulli spurði hvort þetta væri kærasti hennar og jújú mín komin með danskan kærasta Wink.


En af okkur Gulla er allt gott að frétta, bara brjálað að gera í skólanum í scheme design sem snýst um að teikna og skilgreina öll smáatriðin frá outline proposal sem við vorum í seinast, endalausar teikningar í þrívíddarforriti og svo erum við að læra á Autocat líka, þurfum að fara í öll smáatriðin á öllum málum, lögnum og bara öllu sem við kemur húsinu, rosa gaman og vikurnar fljúga frá manni.
Við erum komin í þvílíka jólaskapið hérna byrjuð að skreyta smá og hlustum á jólalög bara kósý stemmning, svo er líka fullt á dagskrá bæði hjá leikskólanum hennar Köru og einnig hjá íslendingafélaginu, piparkökubakstur og föndur.
Og viti menn það snjóaði í gær, svona ekta jólasnjó en það var ekki mikið samt frábært að fá smá svona íslandsstemmningu Smile
 

Jæja hafið þið það sem allra best í skammdeginu, kveikið á kertum og slökkvið á sjónvarpinu og njótið þess að bara að vera til það eru að koma jól Smile

Halloween og ég sem hélt ađ íslendingar vćru eftirhermurThelma Björg Árnadóttir

Já Danirnir halda heldur betur upp á þennan dag the american way grasker keypt í hlössum allt skreytt með kóngulóm, kóngulóavefjum (eins og það sé ekki nóg af því fyrir ) og í öllum bæklingum eru halloween tilboð á hinu og þessu.
Allavega þá mun ég ekki halda upp á þennan dag þetta árið Kara er ekkert að spá í þessu hvort eð er.
Já síðustu vikur erum við búin að vera vinna í hópunum okkar í stóru verkefni sem kallast outline proposal þ.e. hanna hús teikna það í sketchup ( þrívíddarforrit ) og setja á stórt blað ásamt öllum þeim atriðum sem kúnninn myndi vilja vita um tilvonandi eign sína og þurftum við að gera meðal annars að sýna húsið frá öllum hliðum og hvaða áttir það snýr í  gera tímaplan, kostnaðaráætlun, vatnslagnir, loftræstingu, skolp og fleira.
Í morgun mættum við svo kl 8.20 og hófst presentation eða kynning á verkefninu fyrir bekkjarfélaga og 2 kennara.
Okkur gékk bara mjög vel fengum níu 9 eina 7,5 og eina 8,5 og fengum gott feedback sérstaklega frá Gordon sem sagði við okkar hóp að við hefðum öll frábær presentation andlit ;) hann er líka frábær kennari einn sá besti að mínu mati og frábært að fá gott feedback frá einhverjum sem maður ber mikla virðingu fyrir sem kennara, þannig að það er svolítið spennufall núna og tími til að fagna eins og Gordon sagði.
Vegna þess að við erum búin að vera á fullu í þessu verkefni þá var ég að uppgötva það að við erum búin að gefa myndavélunum okkar allt of langt frí, þið verðið bara að afsaka það.
Ég mun dusta rykið af myndavélinni núna allavega svona á milli verkefna ;) 
Já snúum okkur aðeins að veðrinu hér í Dk þar sem allir eru að spyrja um það, þá er all svakalega kalt, það er svo mikill raki alveg stingandi kuldi en logn sem betur fer og alveg ofboðslega fallegt veður og ég tala nú ekki um litina í trjánum alveg geggjuð hauststemmning svona þegar maður hefur tíma til að líta upp úr bókunum ;) Ásta Rós alveg tilvalið ljósmyndaefni

En vá gleymdi að segja frá því sem við upplifðum um daginn, vorum að rúnta frammhjá smábátahöfninni þegar við snérum okkur næstum úr hálslið, þar voru bara á túninu við aðalgötuna FÍLAR  já þá var cirkus í bænum og á meðan sýningar voru ekki þá voru þeir bara geymdir á túninu.
Við lögðum auðvitað bílnum og fórum að heilsa upp á þá, þetta var eins og draumur en þetta eru alveg mín uppáhaldsdýr.
En samt blendnar tilfinningar vegna þess að þessi dýr eiga í raun að vera frjáls en þarna var aðeins eitt band í kringum svæðið þeirra. En samt sem áður geggjað að gleyma því aðeins og heilsa upp á forvitnu fílana. Kara vildi nátla bara hlaupa undir bandið og til þeirra, hún er ótrúleg ekki hrædd fyrir fimm aur 
Ég var ekki með myndavélina en gat tekið einhverjar myndir á iphone og þarf að tékka á því hvernig þær komu út í tölvunni.
Köru gengur bara rosa vel á leikskólanum og ný og ný orð á dönsku detta upp úr henni á hverjum degi reyndar algjör snild hvað hún sagði við pabba sinn þegar hann fór með hana í gærmorgun á leikskólann og það var  '' hejhej vi ses i morgen '' hehe smá ruglingur.
Seinustu helgi skruppum við á smá skrall á skólabarinn buðum Erlu skvísu í mat hún er náttla bara yndisleg, kíktum aðeins á Binnu og svo hentum við okkur á barinn og Ásgerður kom með hehe sem ætlaði ekki barinn en við erum svo skemmtileg haha , rosa fínt kvöld bara og Gulli umvafinn kvennfólki ;). 
Jæja held að þetta sé orðið bara fínt update í bili og ég er farin að fagna ;)

Bið að heilsa ykkur öllum og sakna ykkar líka og endilega kvitta þarf ekki annað en að skrifa ''kvitt'' ég veit að það eru miklu fleiri sem lesa en kvitta þið nebbla eigið það til að játa það fyrir mér í síma hmmm....
Skora á ykkur
Kveðja Thelms

OktoberfestThelma Björg Árnadóttir

Jæja það líður svolítið langt á milli blogga núna enda nóg að gera bæði í skólanum og þar fyrir utan, svo erum við öll búin að eiga afmæli núna í okt algjört oktoberfest hér á bæ ég 1. Gulli 3. og Kara 14. í gær Wink
Þessa vikuna erum við í vetrarfríi og eru pabbi og Ásgerður búin að vera hjá okkur seinustu 5 daga og fóru í morgun. Það er bara búið að vera æðislegt en tíminn allt of fljótur að líða Frown og Kara var frekar sorgmædd að sjá ekki ömmu og afa í morgun og átti frekar erfitt með að fara sofa í gær vitandi að amma og afi færu í nóttinni.
En við gerðum margt skemmtilegt á þessum stutta tíma fórum í bambagarðinn og fundum enga bamba hehe en fundum haustlaufblöð og hnetur sem komu svo asskoti vel út í broste(smá húmor) skálinni minni hehe á sófaborðinu, heimsóttum svo Sverri bró í sonderborg en hann flutti einmitt þangað í sumar, mjög flottur bær, svo héldum við upp á 3 ára afmæli prinsessunnar í gær og æðislegt að hafa hana Ásgerði mína með í undirbúning fyrir það Wink
Maður er nebbla pínu dekraður í þessum málum heima ég sjálf þarf minnst að gera þegar kemur að afmælum ég á svo góða að Embarassed  það eru líka ekki fáir í afmælum hjá henni dóttur minni heima mjög stór og æðisleg fjölskylda. En þetta afmæli heppnaðist bara mjög vel Wink takk fyrir komuna allir og fyrir stelpuna og takk fyrir pakkana frá íslandi.
Ekki má gleyma að við fengum fullt af kræsingum frá íslandinu lýsi,skólaost, grýtu, íslenskt smjör á fiskinn mmm.. og margt fleira takk mamma og Steinar, tengdó, Pabbi og Ásgerður það var æði
En já svo hefst skólinn aftur á fullu á mánudag við þurfum aðeins að vinna heima í sketchup í vikunni en bara næs að vera í vetrarfríi. 
Ég verð að viðurkenna að ég er farin að sakna ykkar þarna á klakanum sérstaklega þegar það kemur svona pása, því þegar skólinn er þá flýgur tíminn og maður hefur ekki tíma til að sakna neins Wink en vona að við komumst í heimsókn bráðlega á klakann.
 Jæja ætla að glápa á vídjó með Gulla og hafa það kósý í rigningunni
  

Brjálađ ađ gera...Thelma Björg Árnadóttir

Vá held að það sé komin tími á smá skriftir.
Búið að vera brjálað að gera í skólanum og bara skemmtilegt vikurnar fljúga gjörsamlega, mér leist nú ekkert á blikuna í stærðfræðinni svona til að byrja með skildi hvorki upp né niður í öllum þessum tölum en svo LAAAaaaaa viti menn opnaðist fyrir eitthvað í heilanum sem hafði verið í geymslu síðan sko á seinustu öld.
Ég náttla hoppaði af gleði og reiknaði eins og vitleysingur en dagurinn á morgun verður samt skrautlegur 6 STÆRÐFRÆÐITÍMAR ég meina ða eins gott að hella bara í sig nóg af kaffi í fyrramálið.
Seinustu viku erum við búin að vera að vinna í sketchup og að teikna fríhendis og svo í þessari viku erum við að fara tala við hann Gordon sem er by the way geggjaður kennari frá Englandi sem flutti með sér blægjubjöllu til Dk algjör snild hreinræktaður enskur snillingur.
Allavega hann er að fara skipta okkur niður í grúbbur til að vinna saman á þessari önn.
Seinustu helgi var haldin lautarferð í byggholm, íslenskar ss pylsur í boði og alles alveg geggjað þar sem gikkurinn Thelman er ekkert allt of hrifin af þessum dönsku, við fengum líka geggjað veður og Kara skemmti sér konunglega.

Já svo var iceland express með tilboð til Dk í seinustu viku og Pabbi og Ásgerður ætla að skella sér til okkar í vetrarfríinu, líka snild að Sverrir bró er hér í Dk líka þannig að þau slá tvær flugur í einu höggi. 

Helgin já hjúff það var haldið nýbúaball á skólabarnum á laugard. og eins og ekta nýbúum sæmir þá létum við okkur ekki vanta ;).
Gulli fór á kostum og var víst kosinn skemmtilegasti fulli gaurinn fór í splitt og tók meðal annars runway þarna sem ég missti af kanski sem betur fer hehe.
En allavega snildar djamm með snildarfólki
 

Skóli, Miđaldarfestival og kóngulóafóbíaThelma Björg Árnadóttir

Jæja nú er maður bara kominn á fullt í skólanum í seinustu viku fórum við í ferðalag einhverskonar busaferð þar sem takmarkið var að kynnast allra þjóða kvikindum sem eru í constructing architect.
Það byrjaði á rútuferð á þriðjudag c.a. 40 mínútur að fjallinu Himmelbjerget og þar voru skálr fyrir allt liðið eða svona næstum því einhverjir áttu að gista í tjöldum vegna fjölda sem betur fer voru einhverjir skátar með í ferð því ég hefði ekki sofið í tjaldi með skordýr skríðandi þarna í kringum mig.
Svo fórum við í einhverja hópavinnu gera spjald um námið , svo var borðaður hádegismatur og skipt okkur í hópa í ratleik dísuss kræst upp himmelbjerget og kennararnir tjáðu okkur það að við gætum fengið okkur bjór á tveimur stöðum en nei Thelman þurfti auðvitað að lenda með ofur Dönum sem hlupu upp og niður fjallið og til hvers ? ekki unnum við, þeir styttu sér leiðir hingað og þangar og ég var móð og þakin í kóngulóavef þegar á leiðarenda var komið. 
Jæja kennararnir elduðu rosafínan mat og svo var djammað framm eftir nóttu og stóðu íslendingar sig með príði stórir og smáir hehe. Héldum einnig sundlaugarpartý í ísköldu sundlauginni um miðja nótt.
Danirnir stóðu og horfðu á og skulfu meðan íslensku víkingarnir létu sig bara hafa það. Hentum reyndar einum barþjóni út í og hann er að hefna sín með myndum á skólabarnum, stórt slide show, frétti að það væri enn í gangi í gær.
Dagurinn eftir var ekki svo skemmtilegur, flestir íslendingarnir sváfu yfir sig come on morgunmatur klukkan 8.00 og flekasmíði sem átti svo að láta reyna á í sundlauginni.
Liðið hans Egils vann !!! Halló á meðan við syndum í djúpu lauginni þá labbar hann eins og ekkert sé, argasta snild.

Svo er litla prinsessan byrjuð á leikskólanum og hefur það bara gengið rosavel hún er alveg að fíla leikskólann og svo eru tvær íslenskar stelpur á sama aldri og hún þarna en hún babblar líka bara við dönsku börnin við sóttum hana í dag og þá sagði hún eitthvað við okkur sem við vorum ekki að skilja einhver danska, íslenska hehe


Um helgina var miðaldarfestival og kíktum við á það, bærinn var gjörbreyttur, búið að fela alla ljósastaura, setja kyndla, tréspænir á götur og fólkið flest klætt eins og fólk klæddi sig á miðöld. Rif seld á hverju horni og bjór í leirkrúsum. Básar út um allt með alls konar varningi og mat.
Þetta var alveg geggjað.

Í þessari viku unnum við fyrsta hópverkefnið og presinteruðum það í dag sem sagt ég Sara frá Dk, Leonardo frá Venusuella og Barnabas frá Ungverjalandi og var verkefnið okkar um eldhús, baðherbergi og allt í kringum það og vá ég er með bros allan hringinn við fengum very good sem er næstbesta og við erum að tala um fyrsta verkefnið ;) újee

Okey það er ekki það gáfulegasta að flytja til Denmerkur með kóngulóafóbíu en ég vona að þessi fóbía fari að minnka eitthvað annars mun ég leita hjálpar hjá henni Þóru minni hún kann víst að trída svona fóbíu. Sko ég er með net fyrir öllum gluggum og þar sem ekki eru net má ekki opna hehe.

Þessi var í heimsókn hjá okkur á glugganum og einhver þurfti að hræða mig með því að þær sem væru með hvítan kross á bakinu væru eitraðar veeeiiii 
ég sé hvítan kross en þið sko það er þokkalega erfitt fyrir mig bara að sjá myndina kanski bið ég Gulla bara um að setja hana inn.


Pabbi ţú ert alveg brjáluđ....Thelma Björg Árnadóttir

einn frasinn af mörgum sem dettur upp úr dóttur minni þessa dagana. Einhvernveginn tók hún upp línu úr bahama laginu og notar ef hún er eitthvað að þræta við okkur " ég þoli ekki baddnaskóladrama " hvernig veit ég ekki. 
Prinsessan á svo að kíkja í heimsókn á leikskólann í dag  en á að byrja 1. sept svolítið skrítið en samt svo spennandi að sjá hvernig henni gangi með dönskuna.
 Við byrjum í skólanum á morgun og ætlar Magga bjargvætturinn okkar að hjálpa okkur með aðlögunina og vera með Köru í þessa viku og svo ætlar hún líka að leyfa henni að gista annað kvöld því við erum á leið í 24 tíma ferðalag með skólanum. 


 





Hún er algjör perla hún Magga og veit ég ekki hvað við mundum gera án hennar og ekki má gleyma Hadda hann er líka perla.
Takk elsku Magga mín þú ert algjört æði og Haddi þú líka 
Hún þurfti reyndar að klukka mig hérna með einhverjar spurningar og hér koma þær

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

  • Ný-ung
  • Í slori hjá Adda svarta
  • Sundlauginni í Njarðvík
  • Öryggisgæslunni á Keflavíkurflugvelli


Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

  • Pulp fiction 
  • Green mile
  •  Mamma mía
  • Sex and the city
  • Fjórir staðir sem ég hef búið á: 

  • Danmörk 
  • Suðurnesin
  • Reykjavík
  • Spánn



Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  • Greys anatomy  
  • One tree hill
  • sex and the city 
  • 24



Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  • USA Florida
  • USA Minneapolis
  • Marmaris
  • Spánn



Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):

  • ifhorsens.dk
  • mbl 
  • vf.is 
  • visir.is



Fernt matarkyns sem ég held uppá:


  • Íslenskt lambalæri
  • Fiskrétturinn a la mamma ;)
  • kjúklingarétturinn a la Thelma ;) 
  • Lasagna a la mamma ;)

     
    Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:

    Lifandi vísindi 
    Nýtt líf
    Séð og Heyrt
    Vikan


Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:


  • Í Disney landi með familíunni
    Í mall of america að versla eins og brjálæðingur.
    Á skemmtiferðaskipi með kokteil í annari og sólarolíu í hinni.
    Fluga á vegg þegar Kara byrjar í leikskólanum 


Fjórir bloggarar sem ég klukka:


  • Sibbi ;)       
  • Eva ;)              
  • Magnea ;)          
  • Elín ;)


Ţrumur og eldingar og skólinn ađ fara byrjaThelma Björg Árnadóttir

Jæja nú fer maður að máta skólatöskuna á bakið hehe eða græja bara tölvuna. Vá það er bara kominn spenningur í okkur, vorum við að fá gögn um hvernig þetta verður og það byrjar vel skal ég segja ykkur 24 tíma ferð upp í sveit með svefnpoka og allra þjóða kvikindum sem koma til með að standa í puðinu með okkur í vetur. Hlakka bara til ;)
Við erum bara búin að hafa það mjög fínt, reyndar búið að rigna svolítið mikið á okkur en allt í góðu ísland fær góða veðrið á meðan.
Höfum nú alveg fengið sól svona inn á milli og þá er bara flatmagað á ströndinni, fórum líka í mat til Danna og Þóru og sátum á spjalli fram eftir nóttu þau eru alveg yndisleg og ekkert smá kósý húsið þeirra og garðurinn.
Svo var nú haldin svona míní þjóðhátíð hérna á pallinum hjá okkur, þar sem Rúnar eyjamaður með gítar ;) og María mættu í bjór og svo auðvitað Sibbi presley og skemmtum við okkur bara vel í partýtjaldinu í heljarinar rigningu, þrumur eldingar og alles.
jæja ætla að fara henda mér í háttinn, skrifa meira næst

Kominn tími á blogg jáThelma Björg Árnadóttir


Hér á bæ er búið að vera mikið að gera, Mamma og tvíburarnir búin að vera hjá okkur í 2 vikur og lentu náttla í fluttningunum og var mamma super aktíf í að hjálpa okkur að koma öllu fyrir. Takk fyrir elsku mamma svo má ekki gleyma því að hún burðaðist með heila blokk af fiski, fullt af harðfiski og læri með sér og hún tók lest frá köben með allt draslið. Takk elsku mamma mín.
Það er búið að vera mikið að gera hjá okkur fórum í Legoland og hef ég aldrei séð eins mikið fólk klukkutíma biðraðir í flest tæki en við skemmtum okkur vel, fórum meðal annars í 4d bíó á legómynd þar sem ringdi og snjóaði og Köru fannst þetta ekkert sniðugt sat bara með skelfingarsvip á mér og kíkti annars lagið og sá þá eitthvað sem kom að henni en var að reyna hughreysta sjálfan sig og mig og sagði að þetta væri bara bíómynd hehe.Hlæjandi

Við mamma fórum líka í Bambagarð með krakkana og þeir höfðu greinilega ekki fengið að borða lengi, okkur var sagt að taka með spagetti og urðu þeir aðeins of ákafir því þeir bitu mig og mömmu í rassinn.

Fyrstu vikuna var nánast skýjað og rigning og í seinni vikunni fór að birta til sólin skein og hitinn varð mikill, þá var prófað strendurnar hér við sjó og líka við vatn sem er hér 30 mínútur frá og svo sundlaugin til að skola sandinn af okkur.

Á laugardagsmorgun var haldið af stað til Köben og Viktoría komin í hópinn, mamma í lestinni og við á djásninu og við erum búin að sjá það að það er algjört möst að fá sér loftkælingu.
Ullandi
Við hittum mömmu á strikinu og röltum svo öll niður á Nyhavn það var æðisleg stemmning þar fólk á bakkanum með hvítvín og bjór og fólki var orðið svo heitt á bakkanum að það lét sig bara vaða út í sjóinn. En við tókum siglinguna á þetta algjört æði Köru leið svo vel að hún sofnaði bara hjá ömmu sinni í bátnum. Svo borðuðum við á strikinu og héldum  svo öll upp á hótel búin á því eftir erfiðan dag. 
Daginn eftir fórum við í Tívolíið og allir skemmtu sér vel Viktoría náði að plata mig með sér í rólurnar sem eru á einhverjum turni og við fórum lengst upp í háloftin að deyja úr hræðslu með vott af spenningi.
Þetta var rosalega heitur dagur og reyndum við að finna alla skugga í tívolíinu, frábær dagur. Seinnipartinn kvöddum við svo mömmu, Gumma og Karen og héldum heim en það er alltaf jafn leiðinlegt að kveðja sína nánustu Fýldur
Svo er bara búið að vera rólegheit hjá okkur og klárað að ganga frá hér heima og er ég að flokka myndir núna og hendi þeim svo inn á eftir Glottandi

Síjú
Thelma

Ađalvalmynd

Atburđarteljari

Auglýsing

Innskráningar kubbur